Almennir skilmálar

Pantanir

Kex Port ehf (hér eftir nefnt Flatus) tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir þær vörur sem pantaðar eru. Strax og greiðsla berst sendum við þér staðfestingu með tölvupósti og þar með er kominn á samningur milli þín og Flatus.

Ofnæmi og óþol

Flatus tekur enga ábyrgð á ofnæmi eða mataróþoli viðskiptavina sinna. Á www.flatus.is geta kaupendur séð innihaldslýsingu á öllum seldum matvælum.

Verð

Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Flatus sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.

Afhending

Varan afhendist á Flatus á KEX hostel við Skúlagötu 28, 101 Reykjavík

Skattar og gjöld

Öll verð á www.flatus.is eru gefin upp með VSK og eru allir reikningar gefnir út í samræmi við það.

Greiðslumöguleikar

Flatus notar örugga greiðslugátt frá Valitor. Flatus þarf hvorki að taka við né geyma kortanúmer viðskiptavina sinna. Viðskiptavinur velur vöru á vefsíðunni www.flatus.is og þegar kemur að greiðslu er hann fluttur yfir á Greiðslusíðu Valitor þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Greiðslusíða Valitor tryggir að kortaupplýsingar viðskiptavina eru meðhöndlaðar í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi og aldrei aðgengilegar þriðja aðila.

Skilaréttur

Ekki er boðið uppá að skila eða endurgreiða

Trúnaður og persónuupplýsingar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð allra persónuupplýsinga fer í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd.

Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Mál sem rísa kunna vegna samnings þessa skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Flatus áskilur sér rétt til að breyta skilmálum hvenær sem er.

Kex Port ehf
Skúlagata 28
101 Reykjavík

kt 430512-0720
vsk nr 127760